About Asana joga

Asana Jóga er rólegt og vandað jógastúdíó þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, gæði í kennslu og djúpa tengingu við æfinguna. Kennslan byggir á Iyengar-áherslum þar sem nákvæmni, líkamsvitund og skýr leiðsögn skapa öruggt og styrkjandi umhverfi fyrir alla iðkendur.

Við trúum því að jóga sé ferðalag – ekki áfangastaður. Með markvissri uppbyggingu, einstaklingsmiðaðri athygli og notkun hjálpartækja þegar við á, fær hver og einn tækifæri til að dýpka skilning sinn á líkamanum og þróa stöðugleika, styrk og mýkt á eigin forsendum.

Aðaláhersla er lögð á námskeið þar sem þátttakendur fá samfellu, framvindu og persónulegri leiðsögn. Einnig eru í boði opnir tímar og sérviðburðir sem gefa tækifæri til að kynnast aðferðafræðinni eða dýpka æfinguna enn frekar.

Stúdíóið er staðsett á 2. hæð í Faxafeni 10 á Faxatorgi. Aðstaðan er björt, falleg og sérstaklega hönnuð fyrir jógaæfingar með góðum búnaði og þægilegri búningsaðstöðu. (Athugið að ekki eru sturtur á staðnum.)

Asana Jóga er rými fyrir einbeitingu, nærveru og vandaða vinnu – þar sem hver æfing er tækifæri til að hlusta, læra og styrkjast.