Möntur

29 December 2021 • 12:00 - 13:00
Lára Rúnarsdóttir
Lára er eigandi MÓA studio er tónlistarkona, frumkvöðull & meðferðaraðili í höfuðbeina & spjaldhryggjarjöfnun. Lára er jógakennari, tónheilari & nemi í NA-Shamanisma. Hún er með meistaragráðu í kynjafræðum & er einn stofnanda KÍTÓN, félags kvenna í tónlist. Lára hefur gefið út 6 sólóplötur & fékk íslensku tónlistarverðlaunin fyrir lag sitt Altari árið 2020. Lára er annar meðlimur hljómsveitarinnar SILVRA, ásamt Arnari Guðjónssyni, en tónlist SILVRU er spiluð í Retreat Spa Bláa Lónsins. Lára leggur áherslu á jóga, sjálfsvirðingu, sjálfsmildi, valdeflingu, söng, spuna & líkamsvirðingu í sinni kennslu.

Description

Mantra þýðir frelsi hugans & er ótrúlega öflug leið til þess að komast í hugleiðsluástand & ferðast handan takmarkana hugans, út úr áhyggjum & ótta & inn í æðruleysi & frelsi. Kyrjaðar verða frumsamdar möntrur ásamt möntrum frá öllum heimshornum. Tíminn hefst á 100% hreinu súkkulaði & endar á djúpslökun.