Lárujóga
6 January 2022 •
08:30 - 09:30
Lára Rúnarsdóttir
Lára er eigandi MÓA studio er tónlistarkona, frumkvöðull & meðferðaraðili í höfuðbeina & spjaldhryggjarjöfnun. Lára er jógakennari, tónheilari & nemi í NA-Shamanisma. Hún er með meistaragráðu í kynjafræðum & er einn stofnanda KÍTÓN, félags kvenna í tónlist. Lára hefur gefið út 6 sólóplötur & fékk íslensku tónlistarverðlaunin fyrir lag sitt Altari árið 2020. Lára er annar meðlimur hljómsveitarinnar SILVRA, ásamt Arnari Guðjónssyni, en tónlist SILVRU er spiluð í Retreat Spa Bláa Lónsins. Lára leggur áherslu á jóga, sjálfsvirðingu, sjálfsmildi, valdeflingu, söng, spuna & líkamsvirðingu í sinni kennslu.
Description
Nærandi morguniðkun þar sem stuðst er við hugleiðslu, mjúka hreyfingu, úthaldsæfingar & möntrusöng. Byrjum stundina á að skála í 100% hreinu súkkulaði frá Guatemala áður en við köfum inn á við í hlustun á huga, tilfinningar, líkama & anda & endum í djúpslökun með lifandi tónheilun.