Hlédrag

10 February 2022 • 17:00 - 18:00
Lára Rúnarsdóttir
Lára er eigandi MÓA studio er tónlistarkona, frumkvöðull & meðferðaraðili í höfuðbeina & spjaldhryggjarjöfnun. Lára er jógakennari, tónheilari & nemi í NA-Shamanisma. Hún er með meistaragráðu í kynjafræðum & er einn stofnanda KÍTÓN, félags kvenna í tónlist. Lára hefur gefið út 6 sólóplötur & fékk íslensku tónlistarverðlaunin fyrir lag sitt Altari árið 2020. Lára er annar meðlimur hljómsveitarinnar SILVRA, ásamt Arnari Guðjónssyni, en tónlist SILVRU er spiluð í Retreat Spa Bláa Lónsins. Lára leggur áherslu á jóga, sjálfsvirðingu, sjálfsmildi, valdeflingu, söng, spuna & líkamsvirðingu í sinni kennslu.

Description

Frjálst og mjúkt hreyfiflæði í takt við tónlist þar sem hver og einn fær tækifæri til þess að fara inn í djúpa tenginu við eigin líkama. Þaðan er farið inn í hlédrag, eða hugleiðslu í þögn. Tíminn hefst á 100% hreinu súkkulaði og endar á djúpslökun.