Jóga Nidra & Jóga Þerapía

5 December 2023 • 12:00 - 13:00
Hrefna Lind Lárusdóttir

Description

Í þessum tíma er lögð áhersla á að finna meðvitund um eigin líkama og líðan og markmiðið er að ná djúpri slökun. Í byrjun hvers tíma er athyglinni og öndun beint að líkamstöðum sem opna og hreyfa við orkuflæði líkamans. Við slökum á inní stöðurnar og öðlumst um leið meðvitund um eigin líðan og tilfinningar. Síðan er leidd liggjandi djúpslökun þar sem gefst tækifæri til þess að sleppa takinu á því sem við þurfum ekki lengur og með eftirgjöf er hægt að næra líkamann með nýrri orku. Spilað verður á Gong og kristalskálar í slökuninni.

Boðið verður uppá te í lok tímans.