Morgunjóga

26 May 2023 • 10:00 - 11:00
Lára Rúnarsdóttir
Lára er eigandi MÓA studio er tónlistarkona, frumkvöðull & meðferðaraðili í höfuðbeina & spjaldhryggjarjöfnun. Lára er jógakennari, tónheilari & nemi í NA-Shamanisma. Hún er með meistaragráðu í kynjafræðum & er einn stofnanda KÍTÓN, félags kvenna í tónlist. Lára hefur gefið út 6 sólóplötur & fékk íslensku tónlistarverðlaunin fyrir lag sitt Altari árið 2020. Lára er annar meðlimur hljómsveitarinnar SILVRA, ásamt Arnari Guðjónssyni, en tónlist SILVRU er spiluð í Retreat Spa Bláa Lónsins. Lára leggur áherslu á jóga, sjálfsvirðingu, sjálfsmildi, valdeflingu, söng, spuna & líkamsvirðingu í sinni kennslu.

Description

Jóga er dásamleg leið til iðkunar. Hún er áhrifarík til streitulosunar og uppbyggingar. Haldið er hverri stöðu í lengri tíma, með búnað sér til stuðnings, til þess að ná dýpra inn í bandvefinn. Tímarnir hefjast á 100% hreinu súkkulaði eða móate og enda á góðri slökun.