Tónheilun

27 July 2023 • 12:00 - 13:00
Inga Birna Ársælsdóttir
Inga Birna er jógakennari & nemi í NA- Shamanisma, ásamt því að vera með réttindi til styrktar & næringaþjálfunar. Hún var fyrst íslenskra kvenna til að hljóta svarta beltið í Brazilísku jiu jitsu (BJJ) & starfar sem yfirþjálfari þess starfs hjá Reykjavík MMA. Hún hefur alla tíð lagt mikla áherslu á andlega & líkamlega rækt.

Description

Tónheilun er ótrúlega áhrifarík leið til þess að slaka á og losa um uppsafnaða spennu. Líkaminn okkar er 70% vatn og tónarnir hreyfa við vatni líkamans. Við ferðumst inn að skinni, inn að beini & hreyfum við því sem liggur í dvala & leyni. Tónheilun er byggð á þeirri hugmyndafræði að allt í heiminum sé búið til úr víbringi og að með tónheilun hreyfum við tíðni frumanna í líkamanum. Gongslökun er mjög áhrifarík leið til þess að losa um staðnaða orku & streitu, styrkir taugakerfið & hreinsar undirmeðvitundina. Spilað er á kristalskálar, kopar skálar, gong & trommur. Stundin hefst á kakó eða móatei.