KRAFTUR & KYRRÐ

24 February 2025 • 16:20 - 17:30
María Carrasco
María er dansari & sjúkraþjálfari sem sérhæfir sig í heildrænni kvenheilsu, andlegri & líkamlegri, tengt meðgöngu, fæðingu & tíðarhringrásinni. María er Yoga Nidra kennari & meðferðaraðili í höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð. Í sinni kennslu leggur María áherslu á að dýpka tengingu við líkama og sál í gegnum sjálfsást og valdeflingu og leiðir athafnir með dansi, líkömnun (e. embodyment), tónlist, hugleiðslum, djúpslökun og samhljómi.

Description

Við hefjum stundina á hugleiðslu og öndun, með hreinu kakói og íslensku jurtate.

KRAFTUR: Virkjum lífsorkuna og tengjumst líkamanum með tónlistinni. Upphitun þar sem við liðkum og losum um líkamann. Þaðan ferðumst við inn í dansandi hreyfiflæði, blöndu af leiddum æfingum og frjálsu flæði. Áhersla er lögð á að öll hlusti á sinn líkama og finni sitt flæði í hreyfingunni.

KYRRÐ: Í seinni hluta tímans býðst fólki að leggjast niður í endurnærandi jóga nidra og/eða tónheilun. Djúpslökun, innra ferðalag, kyrrð og ró.