Opið Studio
2 July 2024 •
10:00 - 12:00
Lára Rúnarsdóttir
Lára er eigandi MÓA studio er tónlistarkona, frumkvöðull & meðferðaraðili í höfuðbeina & spjaldhryggjarjöfnun. Lára er jógakennari, tónheilari & nemi í NA-Shamanisma. Hún er með meistaragráðu í kynjafræðum & er einn stofnanda KÍTÓN, félags kvenna í tónlist. Lára hefur gefið út 6 sólóplötur & fékk íslensku tónlistarverðlaunin fyrir lag sitt Altari árið 2020. Lára er annar meðlimur hljómsveitarinnar SILVRA, ásamt Arnari Guðjónssyni, en tónlist SILVRU er spiluð í Retreat Spa Bláa Lónsins. Lára leggur áherslu á jóga, sjálfsvirðingu, sjálfsmildi, valdeflingu, söng, spuna & líkamsvirðingu í sinni kennslu.
Description
Opið studio er rými til iðkunar á eigin forsendum. Aðgangur að sal, spilum og búnaði til þess að iðka með sjálfum sér. Kakó eða tebolli í boði. Aðgangur kostar 1500 kr en hægt að kaupa 10 tíma klippikort í opið rými fyrir 11.000. Opið rými er alla virka daga milli 10 - 12 og laugardaga milli kl. 12 - 14.