Mjúkt flæði, gong slökun og Jóga Nidra
April 7, 2025 •
5:00 pm - 6:00 pm
Inga Rún Björnsdóttir
Inga Rún Björnsdóttir er sálfræðingur hjá Betri svefni og SheSleep og hefur mikinn áhuga á mikilvægi slökunar og svefns fyrir líkamlega og andlega heilsu.
Inga hefur lokið 200 tíma jógakennaranámi hjá Jógasetrinu ásamt I AM Yoga Nidra Professional and Advanced Training (I, II og III) hjá Kamini Desai.
Description
🧘 Við byrjum tímann á mjúku og mjög rólegu jógaflæði. Við mýkjum háls, herðar, axlir og bak til að losa um spennu og streitu sem oft safnast þar fyrir. Lögð er áhersla á að hver og ein hlusti á sinn eigin líkama og hreyfi sig á þann hátt sem hentar best. Það er líka alltaf í boði að leggjast beint í slökun ef það er það sem líkaminn kallar á þann daginn.
🫖 Í upphafi og lok tímans er boðið upp á ljúffengt te sem hluti af rólegri og nærandi stemningu. Þetta er dýrmæt stund til að mæta inn í rýmið í rólegheitum, tengjast sjálfri sér og öðrum – og ljúka svo tímanum með hlýju og nærandi tei áður en haldið er út í daginn eða kvöldið.
📓 Það er velkomið að taka með sér dagbók, þakklætisdagbók eða annað skrifhefti með í tímann. Tíminn fyrir eða eftir jógatímann getur verið dýrmætur til að staldra við, hlusta inn á við og skrá hjá sér það sem kemur upp – hvort sem það eru tilfinningar, innsæi, hugsanir eða einfaldlega nokkur orð af þakklæti. Þetta getur dýpkað tenginguna við sjálfa sig og styrkt áhrifin af jógastundinni.
🪷 Vertu velkomin með okkur í ferðalag á dýpstu svið slökunar í töfrandi rými í miðborginni.
💜 Inga Rún Björnsdóttir leiðir þig inn í draumkennda jóga nidra djúpslökun, inn í kyrrðina, handan hugans.
🪷 Það eru jógadýnur, teppi, púðar og augnhvílur á staðnum, en þér er velkomið að koma með þitt eigið ef þú vilt.
💜 Aðgangseyrir er að vera með áskrift að SheSleep appinu (einungis 800 kr. fyrir einn mánuð).
💜 Svo ef þú ert nú þegar með áskrift þá getur þú skráð þig í viðburðinn.
💜 Ef þú ert ekki með áskrift að SheSleep getur þú sótt appið á www.shesleep.com, virkjað áskrift (800 kr. fyrir einn mánuð, eða 8.400 kr. fyrir ársáskrift) og skráð þig svo í viðburðinn.