Iyengar yoga 90 mín

June 1, 2026 • 5:00 pm - 6:30 pm
Faxatorg
Alda Pálsdóttir
Alda er iðjuþjálfi með sérhæfingu í áfalla -og tengslamiðaðri nálgun og hefur þvi mikinn áhuga á leiðum til að hlúa að taugakerfinu. Hún útskrifaðist sem jógakennari 2017 og hefur síðan þá haldið áfram að læra aðferðir til að efla líkamsvitund og lifsgæði.

Description

Í þessum 90 mínútna Iyengar-jógatíma er lögð áhersla á nákvæmni, líkamsvitund og góða tækni í stöðunum. Tíminn byggir upp styrk, liðleika, jafnvægi og einbeitingu með skýrum leiðbeiningum og einstaklingsmiðaðri nálgun. Notast er við ýmis hjálpartæki eins og kubba, belti, teppi og stóla sem gera öllum kleift að vinna út frá eigin getu. Tímanum lýkur með slökun sem stuðlar að ró og endurnæringu fyrir líkama og huga.