Morgunjóga – Iyengar jóga

October 12, 2026 • 6:15 am - 7:15 am
Faxatorg
Guðríður Nanna Helgadóttir

Description

Mánudagar og miðvikudagar kl. 6:15–7:15. Kennari: Guðríður Nanna Helgadóttir. Verð 23.900 kr. fyrir tímabilið 5. október–4. nóvember 2026.

Byrjaðu daginn með meðvitaðri hreyfingu, einbeitingu og ró. Iyengar jóga byggir á kennslu B.K.S. Iyengar og leggur áherslu á nákvæmni í jógastöðum, góða líkamsstöðu og samspil styrks, liðleika og jafnvægis.

Við hverju má búast?
Kennari sýnir stöðurnar og leiðir þig í gegnum þær skref fyrir skref með skýrum leiðbeiningum. Unnið er markvisst með líkamsbeitingu og stöðunum oft haldið um stund, svo þú fáir tækifæri til að finna hvernig líkaminn vinnur og dýpka skilning þinn á hreyfingunni. Tíminn getur verið krefjandi þótt farið sé yfirvegað í æfingarnar.

Í tímunum er notaður jógabúnaður eins og kubbar, belti, teppi og stólar eftir þörfum. Þessi búnaður veitir stuðning og hjálpar til við að aðlaga stöðurnar að ólíkri getu og líkamsbyggingu. Þú þarft því ekki að vera sérstaklega liðug eða kunna allar jógastöðurnar til að byrja.

Í tímunum er unnið með styrk, liðleika, jafnvægi og líkamsvitund, ásamt athygli á öndun. Að lokum er gefinn tími til slökunar. Bæði nýir og vanir iðkendur geta unnið á sínum forsendum og fengið leiðsögn við hæfi.

Mættu í þægilegum fötum sem leyfa hreyfingu og helst nokkrum mínútum áður en tíminn hefst. Við iðkum berfætt og jógabúnaður er til staðar í salnum. Láttu kennara vita fyrir tímann ef þú ert með meiðsli eða þarft sérstaka aðlögun.