Mjúkt Jóga & Tónheilun

18 March 2024 • 12:00 - 13:00
Aldís S Sigurðardóttir
Aldís S. Sigurðardóttir er nálastungufræðingur, qigong kennari og jógakennari. Hún stundaði nám í London þar sem hún öðlaðist BSc í nálastungum og hefur unnið við það í yfir áratug. Með nálastungum, qigong, jóga og tónheilun sameinar hún ýmis meðferðarform og nýtir það í sínum einka- og hópmeðferðum.

Description

Við hefjum tímann á mjúkri hreyfingu áður en við njótum tónheilunar. Tónheilun er ótrúlega áhrifarík leið til þess að slaka á og losa um uppsafnaða spennu. Líkaminn okkar er 70% vatn og tónarnir hreyfa við vatni líkamans. Við ferðumst inn að skinni, inn að beini og hreyfum við því sem liggur í dvala og leyni. Tónheilun er byggð á þeirri hugmyndafræði að allt í heiminum sé búið til úr víbringi og að með tónheilun hreyfum við tíðni frumanna í líkamanum. Spilað er á kristalskálar, kopar skálar, gong og trommur. Stundin hefst á kakó eða móatei.