DANS & SLÖKUN

11 August 2025 • 12:00 - 13:00
Áróra Helgadóttir
Áróra lauk yogakennaranámi hjá Ástu Arnardóttur í Yogavin & framhalds yogakennaranám hjá Julie Martin á Indlandi. Hún hefur kennt jóga & hugleiðslu fyrir unglinga í grunnskóla, starfsfólk Forsætisráðuneytisins, Hagstofu Íslands, tekið að sér kennslu á ýmsum retreat námskeiðum, o.fl. Ýmsar aðferðir og réttindi hafa bæst í verkfæratöskuna síðustu árin, s.s. markþjálfun, yoga nidra djúpslökun, tilfinningavinna o.fl.

Description

Við hefjum stundina á hugleiðslu og öndun, með hreinu kakói og íslensku jurtate.

DANS: Virkjum lífsorkuna og tengjumst líkamanum. Upphitun þar sem við liðkum og losum um líkamann. Þaðan ferðumst við inn í dans / hreyfiflæði með tónlist, inn í blöndu af leiddum æfingum og frjálsu flæði. Áhersla er á að fólk hlusti á sinn líkama og finni sitt flæði í hreyfingunni.

NIDRA: Í lok tímans býðst fólki að leggjast niður í endurnærandi jóga nidra og/eða tónheilun. Djúpslökun, kyrrð og ró.