Iyengar Yoga

June 24, 2026 • 10:00 am - 11:15 am
Faxatorg, 1
Bríet Birgisdottir
Við erum staðsett í Faxafeni á 2. hæð. Næg bílastæði fyrir framan eða aftan við Örninn/Hagkaup. Við erum með allan jógabúnað á staðnum - þú þarft ekki að taka neitt með nema þægileg föt.

Description

Líflegur og nærandi morguntími sem hjálpar þér að vakna inn í daginn með aukinni orku, styrk og einbeitingu. Unnið er með klassískar Iyengar-jógastöður þar sem áhersla er lögð á nákvæmni, góða líkamsbeitingu og meðvitaða öndun. Hjálpartæki eru notuð eftir þörfum til að styðja við iðkunina og gera hana aðgengilega fyrir mismunandi getu. Tímanum lýkur með stuttri slökun sem skilur eftir tilfinningu fyrir jafnvægi, skýrleika og vellíðan.