Iyengar-jóga/Iyengar jóga

July 11, 2026 • 10:00 am - 11:15 am
Faxatorg, 1
Bríet Birgisdottir
Við erum staðsett í Faxafeni á 2. hæð. Næg bílastæði fyrir framan eða aftan við Örninn/Hagkaup. Við erum með allan jógabúnað á staðnum - þú þarft ekki að taka neitt með nema þægileg föt.

Description

Á laugardögum bjóðum við upp á Hatha-jóga og Iyengar-jóga til skiptis.
Iyengar-jóga er kennt á oddatöluvikum en Hatha-jóga á sléttum vikum.
Tímarnir henta bæði byrjendum og þeim sem hafa meiri reynslu. Áhersla er lögð á meðvitaða hreyfingu, góða líkamsbeitingu, styrk, liðleika og innri ró. Hjálpartæki eru notuð eftir þörfum til að styðja við iðkunina og gera hana aðgengilega fyrir alla.