Hatha jóga (Iyengar)
July 8, 2026 •
4:30 pm - 5:45 pm
Faxatorg
Bríet Birgisdottir
Við erum staðsett í Faxafeni á 2. hæð. Næg bílastæði fyrir framan eða aftan við Örninn/Hagkaup.
Við erum með allan jógabúnað á staðnum - þú þarft ekki að taka neitt með nema þægileg föt.
Description
Nærandi og uppbyggilegur jógatími sem hjálpar þér að færa athyglina frá amstri dagsins yfir í meiri ró og jafnvægi. Unnið er með klassískar Iyengar-jógastöður þar sem áhersla er lögð á nákvæmni, styrk, liðleika og líkamsvitund. Kennslan er skýr og hjálpartæki notuð eftir þörfum til að styðja við iðkunina og gera hana aðgengilega fyrir alla. Tíminn stuðlar að betri líkamsstöðu, auknum stöðugleika og meiri vellíðan í líkama og huga og lýkur með slökun sem undirbýr þig fyrir rólegt kvöld.