Iyengar jóga 90 mín

July 27, 2026 • 5:00 pm - 6:30 pm
Faxatorg
Bríet Birgisdottir
Við erum staðsett í Faxafeni á 2. hæð. Næg bílastæði fyrir framan eða aftan við Örninn/Hagkaup. Við erum með allan jógabúnað á staðnum - þú þarft ekki að taka neitt með nema þægileg föt.

Description

Í þessum 90 mínútna Iyengar-jógatíma er lögð áhersla á nákvæmni, líkamsvitund og góða tækni í stöðunum. Tíminn byggir upp styrk, liðleika, jafnvægi og einbeitingu með skýrum leiðbeiningum og einstaklingsmiðaðri nálgun. Notast er við ýmis hjálpartæki eins og kubba, belti, teppi og stóla sem gera öllum kleift að vinna út frá eigin getu. Tímanum lýkur með slökun sem stuðlar að ró og endurnæringu fyrir líkama og huga.