PRUFUTÍMI - OPINN ÖLLUM Styrkur og liðleiki með jóga

August 24, 2026 • 10:00 am - 11:15 am
Faxatorg
Eva Hallbeck
Certified Iyengar teacher. Kennir á íslensku og ensku.

Description

Styrkur og liðleiki með jóga
Iyengar jóga er markviss og uppbyggileg jógaiðkun sem leggur áherslu á nákvæmni, góða líkamsstöðu og einstaklingsmiðaða kennslu. Með hjálp jógabúnaðar eins og kubba, belta, stóla og bólstra eru æfingarnar aðlagaðar hverjum og einum – óháð aldri, reynslu eða líkamlegri getu.

Á námskeiðinu leggjum við áherslu á að:
✓ Efla styrk og stöðugleika
✓ Bæta liðleika og hreyfigetu
✓ Auka jafnvægi og líkamsvitund
✓ Þjálfa öndun og einbeitingu
✓ Byggja upp örugg og heilbrigð hreyfimynstur